Þú getur fundið lista yfir breytingar og staði sem þú hefur bætt við Google-kort í símanum þínum eða spjaldtölvu. Aðeins þú getur séð listann þinn. Í tengslum við hverja breytingu finnurðu upplýsingar um:
- Hvort breytingin er samþykkt, í bið eða ekki notuð
- Hvaða breytingu þú gerðir á stað, t.d. á afgreiðslutíma eða símanúmeri
- Hvenær þú gerðir breytinguna
Ef breyting var samþykkt nýlega er ekki víst að hún birtist strax á kortinu.
Skoðaðu lista yfir breytingarnar þínar
- Opnaðu Google-kort í tölvunni þinni.
- Efst til vinstri skaltu smella á „Valmynd“
Þín framlög
Breytingar.
Lýsing á stöðu breytinga
Við förum yfir allar breytingar sem þú leggur til til að ganga úr skugga um að upplýsingar Korta séu réttar og uppfærðar. Staða breytinganna þinna verður uppfærð við yfirferðina:
- Í bið: Google er að staðfesta breytinguna.
- Samþykkt: Breytingunni var bætt við Kort.
- Ekki samþykkt: Google gat ekki staðfest breytinguna.
Þú færð hugsanlega ekki Leiðsögumannapunkta fyrir staði sem þú bætir við og eru samþykktir ef einhver annar bætti sama stað við á undan þér.
Svona gerirðu breytingarnar þínar enn betri
Heiti
Notaðu opinbert heiti staðarins sem er notað í búðarglugga eða á vefsvæðinu. Ekki bæta neinum viðbótarathugasemdum við í reitinn með heitinu.
Heimilisfang
Gefðu upp opinbert heimilisfang. Ef Kort stinga upp á heimilisfangi sem er ekki fullnægjandi skaltu bæta viðbótarupplýsingum við heimilisfangið.
Merki
Þegar þú færir merki skaltu gæta þess að stækka kortið nægilega mikið og skipta yfir í gervihnattarsýn. Það hjálpar þér að sjá byggingar og staðsetja merkið nákvæmlega.
Flokkur
Notaðu sértæka flokka þegar þú lýsir stað. Notaðu til dæmis „Fataverslun“ í staðinn fyrir „Verslun“.
Afgreiðslutími
Sláðu inn afgreiðslutíma staðar. Þú getur slegið inn mismunandi afgreiðslutíma eftir dögum.
Símanúmer
Gefðu upp aðalsímanúmer staðarins. Gakktu úr skugga um að númerið sem þú gafst upp sé rétt.
Vefsvæði
Gefðu upp opinbert vefsvæði. Ekki setja inn tengla á samfélagsmiðla, vefsvæði sem safna umsögnum eða önnur sambærileg vefsvæði.