Google-kort vísa þér áfram á landslén og birta staðarheiti á staðbundnum tungumálum lands sjálfkrafa. Þú getur breytt landsléninu eða tungumálinu sem birtist á Google-kortum.
Skoðaðu Google-kort á öðru tungumáli
Google-kort birta staðarheiti sjálfkrafa á staðbundnum tungumálum lands en þú getur breytt tungumáli kortsins í tölvunni þinni.
- Opnaðu Google-kort í tölvunni þinni.
- Smelltu á valmyndina
efst til vinstri.
- Veldu Tungumál.
- Veldu tungumál. Merkingar á kortinu birtast á staðbundnu tungumáli landsins þíns en þú getur skoðað upplýsingar um stað á tungumálinu sem þú valdir.
- Valkvætt: Kynntu þér hvernig þú breytir tungumálinu fyrir allar Google-vörur.
Notaðu annað landslén
Google-kort vísa þér sjálfkrafa áfram á landslén (vefslóð Google-korta í vafranum þínum) og kortayfirlit í samræmi við staðsetninguna þína. Google-kort virka með mörgum landslénum, til dæmis .de eða .jp.
Ef lénið þitt er ekki rétt eða ef þú vilt nota .com geturðu breytt því í stillingunum þínum.
- Opnaðu Google-kort í tölvunni þinni.
- Smelltu á heiti landsins sem birtist neðst í hægra horninu (til dæmis
BandaríkineðaBretland). - Í kjölfarið birtist skjár með stillingum Leitar. Veldu land undir „Stillingar svæðis“
- Smelltu á Vista neðst.