Tímalína hjálpar þér að ferðast aftur í tímann og muna hvert þú hefur farið með því að vista heimsóknir og leiðir sjálfkrafa á tímalínu Google-korta í öllum innskráðu tækjunum þínum. Þú getur breytt tímalínu Google-korta eða eytt tímalínugögnunum þínum hvenær sem er.
- Þegar þú afritar tímalínugögnin þín vista Kort dulkóðað afrit af gögnunum á þjónum Google.
- Jafnvel þótt tækið þitt týnist eða skemmist muntu geta flutt gögnin þín í annað tæki, svo framarlega sem þú ert með kveikt á öryggisafritun.
Þar sem tímalína Google-korta byggist á gögnum sem koma beint úr tækinu þínu er tímalínan ekki í boði í Kortum í tölvu. Til að nota tímalínu Google-korta skaltu sækja kortaforrit Google.
Þú ert við stjórnvölinn
Sjálfgefið er slökkt á tímalínunni á Google-reikningnum þínum og aðeins er hægt að kveikja á henni ef þú samþykkir það.
Tímalínan þín verður varðveitt í samræmi við stillingar sjálfvirkrar eyðingar eða þar til þú eyðir henni. Þú getur slökkt á tímalínunni þinni eða eytt henni í heild sinni hvenær sem er í Virkni mín á Google. Notaðu forrit Google-korta í snjalltækinu þínu til að eyða aðeins hluta af tímalínunni.