Þú getur leitað að stöðum og staðsetningum í Google-kortum.
Þegar þú skráir þig inn í Google-kort færðu ítarlegri leitarniðurstöður. Þú getur fundið staði sem þú hefur áður leitað að og leitað að tengiliðum þínum eftir nafni.
Leit að stað á Google-kortum
- Opnaðu forrit Google-korta
í Android-síma eða -spjaldtölvu.
- Ýttu á leitarreitinn efst og sláðu inn heimilisfang eða heiti staðar eða veldu flokk, t.d. bensínstöðvar eða matvöruverslanir.
- Til að nota raddleit skaltu ýta á „Tala“
.
- Til að nota raddleit skaltu ýta á „Tala“
Að sía leitarniðurstöður í Google-kortum
Ekki eru allir síunarvalkostir í boði á öllum tungumálum og í öllum löndum / á öllum svæðum.
- Leitaðu að tegund fyrirtækis, veitingastaðar eða staðar í Android-síma eða -spjaldtölvu.
- Fyrir ofan leitarniðurstöðurnar skaltu ýta á Fleiri síur.
- Veldu síur. Ýttu síðan á Nota.
Leitaðu að flokki staða í Google-kortum
- Opnaðu forrit Google-korta
í Android-tækinu þínu.
- Sláðu leitarmöguleika inn í leitarreitinn, til dæmis
veitingahús.- Sérsniðnar leitarniðurstöður gætu birst undir leitarreitnum.
- Veldu stað til að skoða þær á kortinu og fá frekari upplýsingar.
Ábendingar um leit í Google-kortum
Dæmi um það eru:
- Tiltekin fyrirtæki:
Starbucks. - Tegundir staða:
Kaffi nálægt Central Park. - Þrengdu leitina með því að gefa upp borg og fylki:
Matvöruverslanir í Atlanta, GA. - Þrengdu leitina með því að gefa upp póstnúmer:
bensín í 94131. - Finndu gatnamót:
23rd og Mission. - Heimilisfang, borg, fylki, land eða flugvöllur:
1600 Amphitheater Parkway Mountain View CA, LAX, Los Angeles-flugvöllur, eða Mount Everest, Nepal. - Lengdar- og breiddargráða:
41.40338, 2.17403. - Vinir og aðrir tengiliðir (innskráning nauðsynleg):
Alex Cooper. - Nöfn annarra einstaklinga í G Suite-tengiliðum.
Fáðu nánari upplýsingar um stað
Til að fá nánari upplýsingar um stað skaltu gera eitt af eftirfarandi:
- Velja smáprjón á kortinu.
- Sleppa prjóni á kortið.
- Leita að tilteknum stað.
Þú getur fengið upplýsingar um staðinn, t.d. heimilisfang, opnunartíma, símanúmer, vefsvæði og einkunnir eða umsagnir.
Ábending: Þú getur notað 3D Touch til að finna vefsvæði staðar, vista stað, fá leiðarlýsingu og deila stað í iPhone 6s og nýrri útgáfum. Til að kveikja á 3D Touch skaltu opna stillingaforritið Almennt
Aðgengi
3D Touch. Opnaðu síðan Google-kort og haltu stað inni.
Svona birtast staðbundnar niðurstöður í Google-kortum
Almennir staðir á kortinu
Staðbundnar niðurstöður birtast fólki sem leitar að fyrirtækjum og stöðum í nágrenninu. Þær birtast á ýmsum stöðum í Kortum og Leit.
Ef þú leitar t.d. að ítölskum veitingastað í snjalltækinu þínu geturðu fengið staðbundnar niðurstöður. Google birtir þér veitingastaði í nágrenninu sem þú gætir haft áhuga á.
Ýmsir þættir, aðallega vægi, fjarlægð og sýnileiki, hafa áhrif á leitarniðurstöðurnar. Besta leitarniðurstaðan er fundin með því að nota blöndu af þessum þáttum.
Ef líklegra er að þú finnir það sem þú leitar að lengra í burtu gætu reiknirit Google ákveðið að raða niðurstöðu hærra í staðbundnum niðurstöðum.
Nánar um staðbundnar leitarniðurstöður í Google.Ábending: Greiðsla frá öðrum fyrirtækjum hefur ekki áhrif á niðurstöður í Google-kortum. Kostað efni í Google-kortum er merkt.
Staðir sem eiga við þig
Þú getur prófað sérsniðna leit í Google-kortum.
Hér eru nokkur dæmi um hvaðan þessar upplýsingar kunna að koma:
Í Google-kortum
Staðir sem birtast þér gætu hafa verið valdir fyrir þig út frá:
- Viðbrögðum þínum við stöðum á kortinu, þar á meðal notkun þinni á Google-kortum á öðrum vefsvæðum.
- Nýlegum leitum þínum, þar á meðal leitum að leiðarlýsingum.
- Stöðum sem þú hefur vistað eða deilt í tölvunni þinni, síma eða spjaldtölvu.
- Stöðum sem þú eða fólk í kringum þig hefur gefið einkunn eða umsögn.
- Heimilisfanginu þínu eða vinnustaðar þíns ef þú ert með þau valin í Google-kortum eða straumnum þínum.
Aðrar Google-vörur
Staðir sem birtast þér gætu hafa verið valdir fyrir þig út frá:
- Sérsniðnum kortum, ef þú ert með slík í My Maps.
-
Fólki og stöðum sem þú hefur bætt við Google-tengiliðina þína, t.d. Flatbökugerðinni.
Ef þú vilt ekki sjá leitartillögur í Google-kortum skaltu uppfæra kjörstillingarnar þínar í öðrum Google-vörum.