Safnar myndum frá þriðju aðilum (mælaborðsmyndavél)

Google vinnur með traustum fyrirtækjum sem safna myndefni í formi stuttra vídeóa frá framleiðendum mælaborðsmyndavéla fyrir fyrirtæki og neytendur. Til að halda kortunum okkar ferskum og uppfærðum notar Google myndir til að greina og staðfesta breytingar í raunveruleikanum, svo sem uppfærslur á hámarkshraða og ný umferðarskilti. Google birtir ekki þetta myndefni.

Í þessari grein geturðu fundið frekari upplýsingar um:

  • Hvers konar myndefni Google notar
  • Hvernig við notum myndefni[
  • Hvernig við tryggjum persónuvernd
  • Hverjum við vinnum með

Um myndefnið

Google er með leyfi fyrir myndefni í formi stuttra, hljóðlausra vídeóbrota úr mælaborðsmyndavélum bíla frá traustum fyrirtækjum þriðju aðila. Þessi fyrirtæki nota mælaborðsmyndavélar í daglegum rekstri. Þau gætu til dæmis notað þær til að safna myndefni fyrir rannsóknir á slysum eða selt neytendum slík tæki. Með samþykki þátttakenda deila þessi fyrirtæki myndefni með traustum samstarfsaðilum á borð við Google til að hjálpa til við að uppfæra Google-kort eða sem fyrsta skref í vegabótum.

Við biðjum aðeins um myndefni á svæðum þar sem við höfum vísbendingar um að þörf sé á uppfærslu á kortinu okkar. Við getum til dæmis beðið samstarfsaðila um stutt vídeó af tilteknum vegarkafla sem sýnir hámarkshraðaskilti. Ef samstarfsaðilinn er með nýlegt myndefni af þessum vegarkafla getur Google notað það til að hjálpa til við að uppfæra hámarkshraðann sem við sýnum í Kortum.

Hvernig myndefnið er notað

Til að greina upplýsingar sem tengjast kortum, s.s. ný hámarkshraðaskilti, notar Google samsetningu af gervigreind og aðstoð frá rekstrarteymi okkar. Við drögum upplýsingarnar út og uppfærum Google-kort áður en við eyðum myndefninu.

Persónuvernd

Google fylgir ströngum persónuverndarstöðlum þegar það safnar og notar þetta myndefni:

  • Við fáum aðeins efni frá traustum aðilum.
  • Allir þátttakendur fá tilkynningu um notkun mælaborðsmyndavélarinnar og neytendur samþykkja að deila stuttum vídeóbútum til að hjálpa til við að uppfæra kortið.
  • Bæði samstarfsaðilar okkar og Google nota nýjustu tækni til að blörra persónuupplýsingar, svo sem auðkennanleg andlit og númeraplötur.
  • Google birtir ekki myndefnið.
  • Við biðjum aðeins um stutta búta af opinberum vegum og aðeins þar sem þörf er á uppfærslum á kortum.
  • Myndefnið er fjarlægt skömmu eftir notkun.

Til að fá frekari upplýsingar um gagnasöfnunaraðferðir samstarfsaðila okkar geturðu skoðað vefsvæði þeirra.

Samstarfsaðilar Google

Við erum í samstarfi við eftirfarandi samstarfsaðila: Hver samstarfsaðili notar sína eigin aðferðafræði við gagnasöfnun og veitir upplýsingar um það á vefsvæðum sínum:

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Google forrit
Aðalvalmynd
7932769465681354459
true
Leita í hjálparmiðstöð
false
true
true
true
true
true
76697
false
false
false
false