Veldu hvernig þú birtist opinberlega í Google-kortum og Leit

Þú stjórnar því hvernig þú birtist þegar þú birtir opinberar færslur í Google-kortum og Leit. Þú getur notað nafnið og myndina á Google-reikningnum þínum eða búið til sérsniðið nafn og mynd.

Breyttu sérsniðnu nafni og mynd opinbera prófílsins þíns

Mikilvægt: Sérsniðna nafnið og myndin birtast opinberlega í Google-kortum og Leit. Þegar þú breytir sérsniðnu nafni eða mynd í Google-kortum uppfærist það/hún sjálfkrafa í Google-forritinu og öfugt.

Í forriti Google-korta

Til að breyta sérsniðnu nafni eða mynd:

  1. Opnaðu forrit Google-korta Kort í Android-síma eða -spjaldtölvu.
  2. Ýttu á „Leggja til“ Leggja til og síðan Skoða prófíl og síðan Breyta prófíl Breyta.
  3. Merktu við reitinn við hliðina á „Nota sérsniðið skjánafn og mynd við birtingu færslna“.
    • Afmerktu reitinn við hliðina á „Nota sérsniðið skjánafn og mynd við birtingu færslna“ til að birta opinberar færslur með prófílnafni og -mynd Google-reikningsins þíns í staðinn.

  4. Breyttu sérsniðnu nafni eða mynd:
    • Til að breyta myndinni þinni: Ýttu á prófílmyndina þína.
      • Þú getur annaðhvort valið myndskreytingar eða myndir úr tæki.
    • Til að breyta nafninu þínu: Ýttu á Skjánafn og gerðu viðeigandi breytingar.
  5. Ýttu á Staðfesta.

Í Google-forritinu

Til að breyta sérsniðnu nafni eða mynd:

  1. Opnaðu Google-forritið Google Search í Android-síma eða -spjaldtölvu.
  2. Efst til hægri skaltu ýta á prófílmyndina þína eða upphafsstafinn Reikningshringur og síðan Prófíllinn þinn og síðan Breyta prófíl.
  3. Merktu við reitinn við hliðina á „Nota sérsniðið skjánafn og mynd við birtingu færslna“.
    • Afmerktu reitinn við hliðina á „Nota sérsniðið skjánafn og mynd við birtingu færslna“ til að birta opinberar færslur með prófílnafni og -mynd Google-reikningsins þíns í staðinn.

  4. Breyttu sérsniðnu nafni eða mynd:
    • Til að breyta myndinni þinni: Ýttu á prófílmyndina þína.
      • Þú getur annaðhvort valið myndskreytingar eða myndir úr tæki.
    • Til að breyta nafninu þínu: Ýttu á Skjánafn og gerðu viðeigandi breytingar.
  5. Ýttu á Staðfesta.

Á Google-prófílnum þínum

Til að breyta sérsniðnu nafni eða mynd eftir að þú hefur búið það/hana til:

  1. Opnaðu Google-prófílinn þinn.
  2. Ýttu á Breyta prófíl.
  3. Merktu við reitinn við hliðina á „Nota sérsniðið skjánafn og mynd við birtingu færslna“.
    • Afmerktu reitinn við hliðina á „Nota sérsniðið skjánafn og mynd við birtingu færslna“ til að birta opinberar færslur með prófílnafni og -mynd Google-reikningsins þíns í staðinn.

  4. Breyttu sérsniðnu nafni eða mynd:
    • Til að breyta myndinni þinni: Ýttu á prófílmyndina þína.
      • Þú getur annaðhvort valið Myndskreytingar eða Myndir úr tæki.
    • Til að breyta nafninu þínu: Ýttu á Skjánafn og gerðu viðeigandi breytingar.
  5. Ýttu á Staðfesta.

Sérsniðna nafnið og myndin birtast á eftirfarandi stöðum:

Aðrir geta séð sérsniðna nafnið og myndina á prófílnum þínum í Google-kortum. Nafnið og myndin birtast einnig með opinberum framlögum þínum í Google-kortum og Leit, svo sem:

Ábending: Sérsniðna nafnið og myndin birtast ekki opinberlega þegar þú vistar lista eða flokka, bregst við efni eða leggur til breytingu með lokuðum hætti.

Staðir þar sem prófílnafnið og -myndin á Google-reikningnum þínum birtast

Prófílnafnið og -myndin á Google-reikningnum þínum birtast ásamt upplýsingum sem tengjast ekki opinberum færslum þegar þú:

Ábending: Nafn og mynd Google-reikningsins þíns birtast ekki opinberlega þegar þú vistar lista eða flokka, bregst við efni eða leggur til breytingu með lokuðum hætti.

Settu notandaprófíl á bannlista

Þú getur notað snjalltæki til að setja einstakling á bannlista þannig að viðkomandi geti ekki fundið prófílinn þinn í Kortum. Google-kort munu ekki láta viðkomandi vita að þú hafir sett hann á bannlista.

Mikilvægt: Fólk sem þú setur á bannlista getur hugsanlega enn séð framlögin þín í Google-kortum en mun ekki sjá þau á prófílnum þínum. Hafðu einnig í huga að ef notandi á bannlista er ekki skráður inn á reikninginn sem þú settir á bannlista mun viðkomandi geta séð framlögin þín. Kynntu þér hvernig þú setur/tekur reikninga fólks á/af bannlista.

Tengd gögn

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Google forrit
Aðalvalmynd
7804670102113888872
true
Leita í hjálparmiðstöð
false
true
true
true
true
true
76697
false
false
false
false
false