Notaðu Google-kort til að vita hvenær tiltekin svæði – t.d. hverfi eða gatnasvæði – eru annríkari en venjulega. Þú getur notað þessar upplýsingar til að forðast fjölmenn svæði eða leita þau uppi.
Hvenær sé ég annrík svæði?
Þegar þú opnar forritið sýna Google-kort þér hvenær svæði nálgast hámarksannríki. Ef þú ýtir á merkið „Annríkt svæði“ birtist myndrit sem sýnir hversu annríkt svæðið er á ólíkum tímum dags ásamt lista yfir veitingastaði, verslanir og afþreyingu (s.s. söfn) á svæðinu. Þú gætir þurft að stækka svæðið til að sjá upplýsingar um annríki þess.
Svona reiknum við út annríki á hverjum stað
Við sameinum annríkissveiflur staða í rauntíma á tilteknu svæði, t.d. verslana, veitingastaða, almenningsgarða, kaffihúsa o.s.frv. til að ákvarðra heildarannríki á svæðinu. Þessar sveiflur gefa til kynna hversu annasamt svæði er venjulega. Þegar svæði nálgast eða nær hámarksannríki merkjum við það sem „Annríkt svæði“ í Google-kortum. Til að vernda friðhelgi notenda okkar reikna kerfi okkar ekki upplýsingar um annríki íbúasvæða, s.s. húsa eða íbúða.
Til að ákvarða vinsælar tímasetningar, biðtíma og lengd heimsókna notar Google samantekin og nafnlaus gögn frá notendum sem hafa valið að kveikja á Google-tímalínu, sem sjálfgefið er slökkt á. Við sýnum vinsælar tímasetningar, biðtíma og lengd heimsókna ef fyrirtæki fær nógu margar heimsóknir frá þessum notendum. Þú getur ekki bætt þessum upplýsingum handvirkt við staðsetninguna þína og þær birtast eingöngu ef Google hefur næg gögn um heimsóknir í fyrirtækið.
Við notumst við persónuvernd við mismunun sem tryggir að ekki er hægt að nota gögn um annríki til að bera kennsl á þig. Og ef kerfin okkar skortir upplýsingar til að geta birt nákvæma og nafnlausa áætlun á annríki birtum við hana ekki. Því er hugsanlegt að þú getir ekki alltaf séð upplýsingar um annríki svæðis.
Svona skilgreinum við svæði
Google-kort sýna nú þegar „áhugaverð svæði“ á kortinu – verslunarsvæði sem vitað er að bjóði upp á ýmiss konar afþreyingu og athafnir. Til að reikna út annríki á svæði sameinum við annríkissveiflur í rauntíma frá stöðum á borð við verslanir, veitingastaði, almenningsgarða, kaffihús og fleira til að geta áætlað heildarannríki á svæðinu. Þegar svæði nálgast eða ná hámarksannríkismörkum merkjum við það sem „Annríkt svæði“ í Google-kortum.
Mikilvægt:
Við höfum gripið til ýmissa varúðarráðstafana til að tryggja samfélagsöryggi, þar á meðal:
- Upplýsingar um annríki á tilteknu svæði fela aldrei í sér nákvæma staðsetningu tiltekins einstaklings. Við notum háþróaða tækni sem nefnist „persónuvernd með mismunun“ til að tryggja að öll gögn haldist nafnlaus, örugg og lokuð.
- Við birtum aldrei upplýsingar um heildarfjölda fólks á tilteknu svæði. Við merkjum tiltekið svæði aðeins sem annríkt með því að nota samanburð við annríki á svæðinu nýverið.
- Við birtum upplýsingar um annríki fyrir fyrir fram skilgreint „áhugavert svæði“ í heild sinni. Við sýnum aldrei nákvæmlega hvar fólk er statt á svæðinu.
- Auk þess reiknum við ekki út upplýsingar um annríki í íbúðarhverfum, s.s. húsum eða íbúðum.