Veldu myndaheimild í iPhone eða iPad

Ef þú notar iOS 14 eða nýrri útgáfu geturðu valið um stig myndaheimildar:

  • Veita aðgang að öllum myndum: Öllum myndunum þínum verður deilt með Google-kortum. Þetta á einnig við um myndir sem teknar eru eftir að þú velur þennan valkost.
  • Valdar myndir: Aðeins völdum myndum verður deilt með Google-kortum. Myndirnar sem þú velur eru þær einu sem þú getur notað í Google-kortum.
  • Ekki veita: Engum myndum verður deilt með Google-kortum.

Ábending: Þegar þú velur „Veita aðgang að öllum myndum“ færðu tillögur að myndum og flokkun.

Veldu myndaheimild

Ef þú vilt fá tillögur að myndum: 

  1. Opnaðu forrit Google-korta Kort í iPhone eða iPad.
  2. Veldu eða leitaðu að staðnum and then Ýttu á Myndir and then Ýttu á Bæta mynd við.
  3. Veldu myndirnar sem þú vilt deila með Google-kortum.
  4. Áður en þú sendir inn gætirðu verið beðin(n)  um að „Kveikja á myndatillögum“. Ýttu á Nánar.
  5. Ýttu á Veita aðgang að öllum myndum.

Ef þú velur heimildarstigið „Valdar myndir“ muntu aðeins geta fundið myndirnar sem þú valdir í forriti Google-korta. Nýjum myndum er ekki deilt nema þú breytir heimildarstiginu í „Veita aðgang að öllum myndum“.

Breyttu myndaheimildinni þinni

Þú getur breytt myndaheimildinni þinni hvenær sem er. 

  1. Opnaðu Stillingar í iPhone eða iPad.
  2. Finndu forrit Google-korta Kort og veldu það. 
  3. Ýttu á Myndir
  4. Veldu heimildarstig.

Svona hafa heimildir áhrif á upplifun þína af Google-kortum

Stig myndaheimildarinnar hefur áhrif á önnur svæði í forriti Google-korta. Þetta á við um:

  • Tilkynningar utan forritsins sem vísa þér á síðuna „Deildu upplifun þinni“ í forritinu. Til dæmis: Tilkynning á borð við „Bættu myndum úr nýlegri heimsókn þinni í almenningsgarðinn við“.
  • Tillögur í forritinu að framlögum til Korta á síðunni „Deildu upplifun þinni“.
  • Hvaða myndum þú getur bætt við færslu eða umsögn.

Við sendum þér aðeins tilkynningar og tillögur um myndirnar sem þú deilir með Kortum. Ef þú velur heimildarstigið „Valdar myndir“ færðu hvorki tilkynningar né tillögur sem tengjast nýjum myndum sem þú tekur eða myndum sem þú hefur ekki deilt með okkur.

Ef þú velur heimildarstigið „Ekki veita“ muntu ekki:

  • Fá tilkynningar utan forritsins um tækifæri til að deila upplifun þinni.
  • Fá tillögur að myndum til að hlaða upp byggt á stöðum sem þú hefur heimsótt.

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Google forrit
Aðalvalmynd
10821725387656589469
true
Leita í hjálparmiðstöð
false
true
true
true
true
true
76697
false
false
false
false