Mikilvægt: Þessi grein á aðeins við um notendur innan ESB.
Lög um stafræna markaði (DMA) eru lög ESB sem tóku gildi 6. mars 2024. Vegna laga um stafræna markaði (DMA) innan ESB býður Google þér að halda ákveðnum Google-þjónustum tengdum.
Þessar Google-þjónustur eru meðal annars:
- Leit
- YouTube
- Auglýsingaþjónustur
- Google Play
- Chrome
- Google Shopping
- Google-kort
Þegar þessar þjónustur eru tengdar geta þær deilt gögnunum þínum sín á milli og með öðrum Google-þjónustum í vissum tilgangi. Hægt er að deila öllum gerðum gagna á milli tengdra Google-þjónusta, eins og lýst er í persónuverndarstefnu Google. Þetta á m.a. við um virknigögn þegar þú ert skráð(ur) inn, t.d. atriði sem þú leitar að og vídeó sem þú horfir og hlustar á.
Þú getur stjórnað valinu á þeim þjónustum sem þú vilt að séu tengdar á Google-reikningnum þínum.
Ábending: Tenging Google-þjónusta snýst ekki um að deila gögnunum þínum með þjónustum þriðju aðila.
Uppfærðu valið á þeim þjónustum sem þú vilt tengja
- Opnaðu Gmail-forritið í iPhone eða iPad.
- Ýttu á valmyndina Stillingar Reikningurinn þinn Stjórna Google-reikningi.
- Ábending: Ef þú notar ekki Gmail skaltu fara á myaccount.google.com/linked-services
- Efst skaltu ýta á Gögn og persónuvernd.
- Undir „Tengdar Google-þjónustur“ skaltu ýta á Stjórna tengdum þjónustum.
- Veldu þær þjónustur sem þú vilt halda tengdum og ýttu á Áfram.
- Ábending: Aðrar Google-þjónustur sem eru ekki tilgreindar eru ávallt tengdar og geta deilt gögnum sín á milli í þeim tilgangi sem lýst er í persónuverndarstefnu okkar í samræmi við persónuverndarstillingarnar þínar.
- Farðu yfir valið þitt og ýttu á Staðfesta Lokið Ég skil.