Lög um stafræna markaði (DMA) eru lög Evrópusambandsins sem tóku gildi 6. mars 2024. Í samræmi við lög um stafræna markaði (DMA) sem gilda innan ESB býður Google þér að tengja ákveðnar Google-þjónustur. Þessar Google-þjónustur eru meðal annars:
- Leit
- YouTube
- Auglýsingaþjónustur
- Google Play
- Chrome
- Google Shopping
- Google-kort
Þú getur valið að tengja allar þessar þjónustur, engar þeirra eða sumar þeirra.
Þegar þessar þjónustur eru tengdar geta þær deilt gögnunum þínum sín á milli og með öðrum Google-þjónustum í vissum tilgangi. Til dæmis geta tengdar Google-þjónustur unnið saman að því að birta þér sérsniðið efni og auglýsingar í samræmi við stillingarnar þínar.
Þú skráist ekki út úr neinum Google-þjónustum ef þú velur að tengja ekki þjónustur. Auk þess snýst tenging Google-þjónusta ekki um að deila gögnunum þínum með þjónustum þriðju aðila.
Google-þjónustur sem eru sjálfkrafa tengdar
Eftirfarandi þjónustur eru sjálfkrafa tengdar hjá notendum á Evrópska efnahagssvæðinu (að Þýskalandi undanskildu) og ekki er hægt að aftengja þær:
- Gisting
- Android Auto
- Android Automotive OS
- Android Studio
- Android TV
- AOSP fyrir sjónvarp
- Hjálpari
- Authenticator
- Blogger
- Reiknivél
- Chrome OS
- Vefverslun Chrome
- Klukka
- Tengiliðir
- Stafræn vellíðan
- Files frá Google
- Finna tækið mitt
- Flug
- Gallery Go
- Gboard
- Gemini-forrit
- Google-tilkynningar
- Google-listir og menning
- Google Automotive Services (GAS)
- Google-jörð
- Google One
- Google Pay
- Google-myndir
- Innskráning með Google
- Google Store
- Google Trends
- Google TV
- Hópar
- Messages
- Nest
- Fréttir
- NotebookLM
- Personal Safety
- Photomath
- PhotoScan
- Upptökutæki
- Snapseed
- Translate
- Veski
- Waze
- Wear OS
- Veður
- Workspace
Þjónustur sem ekki er hægt að tengja
Flestir notendur innan Evrópusambandsins geta tengt allar þjónustur. Notendur í Þýskalandi geta ekki tengt vissar þjónustur.
Ábending: Allar aðrar Google-þjónustur sem deila gögnum sín á milli og eru ekki tilgreindar á listanum hér að ofan eru ávallt tengdar.
Um tengdar þjónustur
Ef þjónustur eru ekki tengdar verða tilteknir eiginleikar sem fela í sér deilingu gagna á milli Google-þjónusta takmarkaðir eða ekki í boði. Dæmi:
- Þegar þjónusturnar Leit, YouTube og Chrome eru ekki tengdar verða tillögur sem þú færð í Leit, t.d. í „Eitthvað til að horfa á“ og tillögustraumnum þínum, ekki jafn sérsniðnar.
- Þegar þjónusturnar Leit og Kort eru ekki tengdar muntu ekki geta vistað staði í Leit.
Þetta hefur ekki áhrif á þjónustuþætti sem fela ekki í sér gagnadeilingu.
Þú skráist ekki út úr neinum Google-þjónustum ef þú velur að tengja ekki þjónustur. Auk þess snýst tenging Google-þjónusta ekki um að deila gögnunum þínum með þjónustum þriðju aðila.
Að stjórna tengdum þjónustum
Þú ert við stjórnvölinn. Þú getur valið hvaða Google-þjónustur hér að ofan þú vilt tengja. Þú getur farið yfir valið eða breytt því á Google-reikningnum þínum hvenær sem er. Kynntu þér hvernig þú stjórnar tengdum þjónustum.
Um gögnin þín
Kynntu þér hvernig gögnin þín eru notuð í tengdum Google-þjónustum.
Gögnin sem eru notuðGoogle notar gögn sem deilt er á milli tengdra þjónusta í þeim tilgangi sem lýst er í persónuverndarstefnu okkar:
- Til að veita þér sérsniðna þjónustu, þ.m.t. efni og auglýsingar, í samræmi við stillingarnar þínar
- Til að viðhalda þjónustum okkar og bæta þær
- Til að þróa nýjar þjónustur
- Til að skilja betur hvernig fólk notar þjónustur okkar til að tryggja og bæta afköst þeirra
Val þitt í tengslum við tengdar þjónustur hefur ekki áhrif á aðrar stillingar, t.d. val þitt um sérsnið Google-þjónusta. Það veitir þér einfaldlega fleiri valkosti til að stjórna því hvernig gögnunum þínum er deilt.
Gögnum úr öllum Google-þjónustunum þínum verður hugsanlega deilt áfram á milli þeirra í ákveðnum tilgangi, óháð því hvort þær eru tengdar eða ekki. Það er til dæmis gert til að koma í veg fyrir svindl, vernda þig gegn ruslefni og misnotkun og til að fylgja lögum.
Gögnunum þínum verður hugsanlega einnig deilt á milli Google-þjónusta til að hjálpa þér að ljúka verkefnum þegar virkni tveggja þjónusta er samtvinnuð.