Lög um stafræna markaði (DMA) eru lög ESB sem tóku gildi 6. mars 2024. Vegna laga um stafræna markaði (DMA) innan ESB býður Google þér að tengja ákveðnar Google-þjónustur. Þessar Google-þjónustur eru meðal annars:
- Leit
- YouTube
- Auglýsingaþjónustur
- Google Play
- Chrome
- Google Shopping
- Google-kort
Þú getur valið um að tengja allar þessar þjónustur, engar þeirra eða sumar þeirra.
Þegar þessar þjónustur eru tengdar geta þær deilt gögnunum þínum sín á milli og með öðrum Google-þjónustum í vissum tilgangi. Til dæmis geta tengdar Google-þjónustur unnið saman að því að birta þér sérsniðið efni og auglýsingar, í samræmi við stillingarnar þínar.
Google-þjónustur sem ekki er hægt að tengja
Fyrir flesta notendur innan Evrópusambandsins eru engar þjónustur sem ekki er hægt að tengja. Notendur í Þýskalandi geta ekki tengt sumar þjónustur.
Ábending: Allar aðrar Google-þjónustur sem deila gögnum sín á milli og eru ekki tilgreindar á listanum hér að ofan eru ávallt tengdar.
Um tengdar þjónustur
Ef þjónustur eru ekki tengdar verða tilteknir eiginleikar sem fela í sér deilingu gagna á milli Google-þjónusta takmarkaðir eða ekki í boði. Dæmi:
- Þegar þjónusturnar Leit, YouTube og Chrome eru ekki tengdar verða tillögur sem þú færð í Leit, t.d. í „Eitthvað til að horfa á“ og tillögustraumnum þínum, ekki jafn sérsniðnar.
- Þegar Leit og Kort eru ekki tengdar þjónustur munu pantanir sem gerðar eru gegnum Leit ekki birtast í Google-kortum.
Þetta hefur ekki áhrif á þjónustuþætti sem fela ekki í sér gagnadeilingu.
Þú skráist ekki út úr neinum Google-þjónustum ef þú velur að tengja ekki þjónustur. Auk þess snýst tenging Google-þjónusta ekki um að deila gögnunum þínum með þjónustum þriðju aðila
Stjórnaðu tengdum þjónustum
Þú ert við stjórnvölinn. Þú getur valið hvaða ofangreindu Google-þjónustur eru tengdar. Þú getur skoðað valið eða breytt því hvenær sem er á Google-reikningnum þínum. Kynntu þér hvernig þú stjórnar tengdum þjónustum.
Um gögnin þín
Kynntu þér hvernig gögnin þín eru notuð í tengdum Google-þjónustum.
Gögnin sem eru notuðGoogle notar gögn sem deilt er á milli tengdra þjónusta í þeim tilgangi sem lýst er í persónuverndarstefnunni okkar:
- Veita sérsniðna þjónustu, þar á meðal efni og auglýsingar, í samræmi við stillingarnar þínar
- Viðhalda þjónustum okkar og bæta þær
- Þróa nýjar þjónustur
- Öðlast betri skilning á því hvernig fólk notar þjónustur okkar til að tryggja og bæta frammistöðu þjónusta okkar
Val þitt sem snýr að tengdum þjónustum hefur ekki áhrif á aðrar stillingar, t.d. val þitt um sérsnið Google-þjónusta. Þetta veitir þér einfaldlega fleiri valkosti til að stjórna því hvernig gögnunum þínum er deilt.
Gögnum frá þér úr öllum Google-þjónustum verður hugsanlega deilt áfram á milli allra þjónusta í ákveðnum tilgangi, óháð því hvort viðkomandi þjónustur eru tengdar. Þetta er t.d. gert til að koma í veg fyrir svindl, vernda þig gegn ruslefni og misnotkun og til að fylgja lögum.
Gögnum frá þér verður hugsanlega einnig deilt á milli Google-þjónusta til að hjálpa þér að ljúka verkefnum þegar virkni tveggja þjónusta er samtvinnuð.