Búðu til traust aðgangsorð og auktu öryggi reikningsins þíns

Búðu til aðgangsorð sem erfitt er að giska á. Það ætti ekki að innihalda persónuupplýsingar á borð við:

  • Fæðingardag
  • Símanúmer

Traust aðgangsorð verndar Google-reikninginn þinn. Bættu endurheimtarupplýsingum við ef ske kynni að þú læsist út af reikningnum þínum.

1. skref: Búðu til traust aðgangsorð

Traust aðgangsorð hjálpar þér að:

  • Gæta að öryggi persónuupplýsinganna þinna
  • Vernda tölvupóstana þína, skrár og annað efni
  • Koma í veg fyrir að aðrir komist inn á reikninginn þinn

Gættu þess að uppfylla kröfur um aðgangsorð

Aðgangsorðið getur verið samsetning bókstafa, tölustafa og tákna (eingöngu ASCII-staðlaðir stafir) Áherslumerki og broddaðir stafir eru ekki studdir.

Þú getur ekki notað aðgangsorð sem:

  • Auðvelt er að giska á. Dæmi: „adgangsord123“
  • Þú hefur notað áður á reikningnum þínum
  • Hefst eða endar á bilstaf

Fylgdu ábendingunum um gott aðgangsorð

Traust aðgangsorð þarf að vera þannig að þú eigir auðvelt með að leggja það á minnið á sama tíma og það er nánast ómögulegt fyrir aðra að giska á það. Kynntu þér hvað gerir aðgangsorð að góðu aðgangsorði og fylgdu síðan ábendingunum til að búa til þitt eigið.

Búðu til einstakt aðgangsorð

Notaðu mismunandi aðgangsorð fyrir mikilvægu reikningana þína, t.d. netfangið þitt og netbanka.

Það hefur áhættu í för með sér að endurnota aðgangsorð að mikilvægum reikningum. Ef einhver kemst yfir aðgangsorðið þitt að einum reikningi gæti viðkomandi fengið aðgang að netfanginu þínu, heimilisfangi og jafnvel fjárhaginum þínum.

Ábending: Ef þú átt í erfiðleikum með að muna mörg aðgangsorð skaltu kynna þér hvernig þú getur notað verkfæri til að stjórna vistuðu aðgangsorðunum þínum.

Búðu til löng aðgangsorð sem auðvelt er að muna

Löng aðgangsorð eru traustari en stutt svo að þú skalt búa til aðgangsorð sem inniheldur a.m.k. 12 stafi. Þessar ábendingar geta hjálpað þér að búa til lengri aðgangsorð sem auðveldara er að leggja á minnið: Prófaðu að nota:

  • Texta úr lagi eða ljóði
  • Þýðingarmikla tilvitnun úr kvikmynd eða ræðu
  • Textabrot úr bók
  • Röð orða sem hafa þýðingu fyrir þig
  • Skammstöfun: Búðu til aðgangsorð úr upphafsstöfum orða í setningu

Forðastu að velja aðgangsorð sem eftirfarandi aðilar gætu giskað á:

  • Fólk sem þekkir þig
  • Fólk sem skoðar aðgengilegar upplýsingar (t.d. samfélagsmiðlana þína)
Forðastu að nota persónuupplýsingar og algeng orð

Ekki nota persónuupplýsingar

Forðastu að búa til aðgangsorð út frá upplýsingum sem aðrir vita eða eiga auðvelt með að finna. Dæmi:

  • Gælunafnið þitt eða upphafsstafi
  • Nafn barnsins þíns eða gæludýrs
  • Mikilvæga afmælisdaga eða ár
  • Götuheitið þitt
  • Tölustafi í heimilisfanginu þínu
  • Símanúmerið þitt

Ekki nota algeng orð og mynstur

Forðastu að nota einföld orð, frasa og mynstur sem auðvelt er að giska á. Dæmi:

  • Augljós orð og frasa á borð við „adgangsord“ eða „skramiginn“
  • Raðir á borð við „abcd“ eða „1234“
  • Mynstur á lyklaborði, t.d. „qwerty“ eða „qazwsx“

Haltu aðgangsorðum öruggum

Þegar þú hefur búið til traust aðgangsorð skaltu grípa til aðgerða til að gæta að öryggi þess.

Feldu minnismiða með aðgangsorðum

Ef þú þarft að skrifa aðgangsorðið þitt niður skaltu gæta þess að skilja miðann ekki eftir á tölvunni þinni eða skrifborði. Gakktu úr skugga um að minnismiðar með aðgangsorðum séu geymdir á öruggum og leynilegum stað.

Notaðu verkfæri til að stjórna aðgangsorðunum þínum

Ef þú átt í erfiðleikum með að muna mörg aðgangsorð skaltu íhuga að nota trausta aðgangsorðastjórnun. Gefðu þér tíma í að fara yfir umsagnir og orðspor slíkrar þjónustu.

Þú getur einnig notað Google-reikninginn þinn til að vista aðgangsorðin þín.

2. skref: Vertu viðbúin(n) ef einhver skyldi komast yfir aðgangsorðið þitt

Endurheimtarupplýsingarnar þínar eru notaðar til að hjálpa þér ef grunsamleg virkni greinist á reikningnum þínum.

Bættu endurheimtarnetfangi við

  1. Opnaðu Google-reikninginn þinn.
  2. Smelltu á Persónuupplýsingar á yfirlitssvæðinu til vinstri.
  3. Smelltu á Netfang á svæðinu Samskiptaupplýsingar.
  4. Smelltu á Bæta endurheimtarnetfangi við.

Bættu endurheimtarsíma við

  1. Opnaðu Google-reikninginn þinn.
  2. Smelltu á Persónuupplýsingar á yfirlitssvæðinu til vinstri.
  3. Smelltu á Sími á svæðinu Samskiptaupplýsingar.
  4. Smelltu á Bæta endurheimtarsíma við.

Við getum notað endurheimtarupplýsingar til að hjálpa þér að:

  • Komast að því hvort einhver annar er að nota reikninginn þinn
  • Fá reikninginn þinn til baka ef einhver hefur komist yfir aðgangsorðið þitt
  • Skrá þig inn á reikninginn þinn ef ske kynni að þú gleymir aðgangsorðinu eða getir ekki skráð þig inn af öðrum orsökum

Hvað ef ég gleymi aðgangsorðinu mínu?

Ef þú týnir eða gleymir aðgangsorðinu að Google-reikningnum þínum geturðu endurheimt Google-reikninginn þinn.

Auktu öryggi reikningsins þíns

Fáðu persónulega ráðgjöf um hvernig þú getur aukið öryggi reikningsins þíns.

Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Google forrit
Aðalvalmynd
4629886926792323462
true
Leita í hjálparmiðstöð
true
true
true
true
true
70975
false
false
false
false