Geturðu hlustað á hljóðefni í YouTube vídeói í tölvunni en vídeóspilarinn er grænn? Ef það gerist skaltu prófa að horfa á vídeóið í öðrum vafra. Ef það virkar ekki eru hér nokkrar ábendingar um úrræðaleit.
Slökkva á vélbúnaðarhröðunFylgdu leiðbeiningunum hér að neðan fyrir Chrome:
- Efst til hægri skaltu velja Meira .
- Veldu Stillingar.
- Veldu Ítarlegt.
- Veldu Kerfi.
- Slökktu á „Nota vélbúnaðarhröðun þegar hún er í boði“.
Ef þú notar annan vafra en Chrome geturðu skoðað hvernig þú getur slökkt á vélbúnaðarhröðun í hjálparefni vafrans.
Ef þú uppfærir skjárekil tölvunnar geturðu ef til vill lagfært mörg vandamálin sem tilgreind eru að ofan.
Fyrir notendur PC-tölva: sæktu nýjasta rekilinn af vefsvæði framleiðanda tölvunnar.
Fyrir Mac-notendur með MacOS Mojave eða nýrra:
- Smelltu á Apple-lógóið.
- Í Apple-valmyndinni skaltu smella á System Preferences.
- Smelltu á Software Update.
- Smelltu á Update Now.
- Settu upp uppfærslu á stýrikerfi Mac ef hún er í boði – uppfærslan á skjáreklinum mun fylgja með.
Ef þú átt í vandræðum með að spila vídeóið skaltu prófa þessi úrræðaleitarskref fyrir spilun.