Þú getur sett upp Google tækjastikuna á Internet Explorer til að leita á Google af hvaða vefsíðu sem er, fylla út vefeyðublöð, þýða vefsíður og fleira.
Uppsetning og samstilling tækjastikunnar
Þú þarft tæki með Windows XP, Vista eða 7+ og Internet Explorer 6 eða nýrri útgáfu til að nota Google tækjastikuna.
- Fjarlægðu allar eldri útgáfur af Google tækjastikunni.
- Opnaðu Google tækjastikuna.
- Smelltu á Sækja Google tækjastiku.
- Smelltu á Samþykkja og setja upp. Ef þú færð upp villuskilaboð við uppsetningu skaltu loka Internet Explorer, endurræsa tölvuna og sækja tækjastikuna aftur.
- Tækjastikan birtist efst í vafraglugganum. Smelltu á Innskráning.
- Skráðu þig inn á Google reikninginn þinn.
- Smelltu á nafnið eða táknið þitt á tækjastikunni.
- Veldu Fá aðgang að stillingum fyrir tækjastiku hvar sem er Já.
Vandamál við uppsetningu Google tækjastikunnar
Ef þú hefur þegar sett upp tækjastikuna en sérð hana ekki skaltu prófa eftirfarandi skref.
Skref 1: Athugaðu birtingarstillingarnar þínar
- Opnaðu Internet Explorer.
- Til að sjá valmyndina skaltu ýta á Alt.
- Smelltu á View (Skoða) Toolbars (Tækjastikur) Google Toolbar (Google tækjastikan).
Ef þú sérð enn ekki tækjastikuna skaltu loka og opna Internet Explorer aftur.
Skref 2: Kveiktu á viðbótum tækjastikunnar
- Opnaðu Internet Explorer.
- Til að sjá valmyndina skaltu ýta á Alt.
- Smelltu á Tools (Verkfæri) Manage Add-ons (Hafa umsjón með viðbótum).
- Veldu Google Toolbar, Google Toolbar Helper og Google Toolbar Notifier BHO.
- Smelltu á Enable (Virkja).
- Smelltu á Close (Loka).
Skref 3: Endurstilltu sérsniðnar stillingar
- Opnaðu Internet Explorer.
- Til að sjá valmyndina skaltu ýta á Alt.
- Smelltu á Tools (Verkfæri) Internet Options (Netstillingar).
- Smelltu á flipann Advanced (Ítarlegt).
- Smelltu á Reset (Endurstilla).
- Smelltu á Delete personal settings (Eyða sérsniðnum stillingum) Reset (Endurstilla).
Tækjastikan fjarlægð
- Opnaðu Internet Explorer.
- Smelltu á Settings (Stillingar) Uninstall (Fjarlægja).
- Smelltu á Ok (Í lagi).